Jesús Kristur með brjóst

Ég er 81 árs unglingur, fæddur í Kristni, skírður í Kristní, fermdur í Kristni, giftur í Kristni og hef alla mína ævi reynt að lifa eftir kenningum og gildum  Kristinnar trúar og fulltrúa hennar hér á landi, biskups, presta preláta og annarra stjórnenda. Skil ekki þetta guðlast kirkjunnar þjóna, sem birtist í auglýsingum þjóðkirkjunnar um "brjóstgóðan Jesús" og hótanir um enn frekari rangar og sóðalegar tilvitnanir í myndum og máli um Frelsara vorn. Fyrirmenn og -konur kirkjunnar,sem standa fyrir þessum rógbburði og óskapnaði, frá biskupi til lægra settra, eiga að sjá sóma sinn í því að segja af sér embættum á vegum kirkjunnar, snúa sér til hefðbundins Kristnihalds og lúta höfði til almættisins með afsökunarbeiðnum fyrir illa grundaðar fullyrðingar og skemmdarstarfsemi til skaða fyrir æsku þessa lands.

SVEI-ATTAN EINS OG AMMA MÍN ÁTTI TIL MEÐ AÐ LÁTA SÉR UM MUNN FARA ÞEGAR HÚN HNEIKSLAÐIST MIKIÐ ! ! !

 

 


mbl.is Munu birta fleiri Kristsgervinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigvaldi Friðgeirsson
Sigvaldi Friðgeirsson

Eldri borgari - lífeyrisþegi

Sept. 2020
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband